1. Hvernig myndirðu eyða hinum fullkomna laugardegi?
2. Hver er uppáhalds liturinn þinn?
3. Hvað myndirðu gera ef þú ynnir milljónir í HHÍ?
1. Hvernig myndirðu eyða hinum fullkomna laugardegi?
2. Hver er uppáhalds liturinn þinn?
3. Hvað myndirðu gera ef þú ynnir milljónir í HHÍ?
Þú ert ákaflega metnaðarfullur og ákveðinn einstaklingur. Þar sem þú ert frumkvöðull í eðli þínu áttu auðvelt með að koma með frumlegar hugmyndir og skapa eitthvað nýtt – jafnvel eitthvað sem gæti breytt heiminum. Týpur eins og þú eru einstaklega sjálfstæðar og eiga auðvelt með að skara fram úr, til að mynda í íþróttum eða á öðrum sviðum, enda myndirðu aldrei sætta þig við meðalmennsku þegar mögulegt er að komast alla leið á toppinn. Einn er kraftmikil tala sem mun koma þér langt í lífinu enda merkir hún nýtt upphaf.
Ef það er eitthvað sem þú átt auðvelt með er það að vinna með öðru fólki. Þú ert mikill friðarsinni í þér og ert gjarnan í hlutverki þess sem miðlar málunum á milli fólks og hvetur til samvinnu. Þú aðlagast auðveldlega nýjum aðstæðum, ekki síst þar sem þú hlustar á innsæi þitt hvað varðar fólk og aðstæður en það kemur í veg fyrir að þú lendir í óþarfa vandræðum. Þú ert afar hlý manneskja og raunar afskaplega rómantísk í eðli þínu. Talan tveir stendur fyrir jafnvægi og áhrifa þess gætir á öllum sviðum lífs þíns.
Þú átt einstaklega auðvelt með að tjá hugsanir þínar og tilfinningar, hvort sem er í töluðu eða rituðu orði. Það er ekki ólíklegt að þú starfir við listir eða eigir þér að minnsta kosti skapandi áhugamál sem þú hefur mikla ástríðu fyrir. Þú hefur ekki aðeins gaman af því að umgangast fólk, það er þér hreinlega lífsnauðsynlegt. Þú ert jákvæð manneskja sem nælir sér í orku með því að gera nýja hluti, umgangast skemmtilegt fólk og lenda reglulega í óvæntum ævintýrum. Talan þrír aðstoðar þig við að fá útrás fyrir alla þessa orku, yfirleitt með áhugaverðum afleiðingum.
Þú ert einstaklega ábyrgur einstaklingur sem býr yfir miklum sjálfsaga. Þú býrð yfir miklum styrk sem veldur því að vinir þínir og fjölskylda leita gjarnan til þín, stöðuga klettsins sem hægt er að reiða sig á, en það truflar þig aldrei því þú ert afar hjálpsöm manneskja sem nýtur þess að koma fólki til aðstoðar. Ráðin frá þér koma sér enda ávallt vel því þú ert svo skynsöm og praktísk manneskja. Þér líkar vel við hefðir og að vita til þess að lífið gangi sinn vanagang. Talan fjórir merkir undirstaða sem þýðir að svo lengi sem grunnurinn hefur verið vel byggður þá stendur hann af sér hvaða storm sem lífið mun færa þér.
Þú ert hugsjónamanneskja, fyrst og fremst. Einstaklingar eins og þú eru afar ævintýragjarnir og fróðleiksfúsir, alltaf tilbúnir til þess að taka áhættu, stíga út fyrir þægindarammann og upplifa eitthvað nýtt og öðruvísi. Heimurinn er þitt leiksvið enda ertu víðsýn manneskja sem hefur ástríðu fyrir því að sjá hvað er handan við sjóndeildarhringinn. Tilgangurinn er ávallt sá að sjá tilveru þína þenjast út og læra þar með meira um þig og heiminn allan. Talan fimm merkir breytingar en það er undir þér komið hvers konar breytingar þú vilt gera á lífi þínu hverju sinni.
Þú ert ábyrgðarfullur einstaklingur sem nýtur þess að vera hluti af stærri heild. Þú hefur ekki mikla þörf fyrir að flakka heimshorna á milli – ekki þegar þú getur skapað hamingjuríka tilveru hér og nú. Þú ert raunar aldrei ánægðari en þegar þú hefur nóg af vinum og fjölskyldu í kringum þig sem þú getur dekrað við. Þú finnur afar auðveldlega til samúðar og samkenndar með fólki, hvort sem um er að ræða þína nánustu eða fólk þér ókunnugt, sem veldur því að það er þér ómögulegt annað en að hlúa vel að fólkinu í kringum þig. Talan sex merkir vernd enda ertu í eðli þínu verndari.
Stærðfræðiformúlur, höfuðborgir heimsins, sagnabálkur Chaucer … Þetta eru dæmi um málefni sem þú gætir flutt fyrirlestur um, enda ertu ákaflega fróður og vel upplýstur einstaklingur. Þú ert týpan sem er með fimm háskólagráður, einfaldlega vegna þess að þér finnst alltaf jafn gaman að læra. Þú hefur ekki mikla þörf fyrir samvistir við fólk því þú ert yfirleitt djúpt sokkin/n í nýjasta áhugamálið þitt. Þú heldur auðveldlega einbeitingu og ert sérfræðingur í að beita rökum og greina menn og málefni. Talan sjö er tala einfarans en einvera gefur þér tækifæri til að líta inn á við og kynnast þér betur, nú eða uppgötva allan heiminn í gegnum bækurnar þínar.
Þú ert týpan sem er ákveðin í því að ná langt í lífinu. Þú hefur metnað fyrir því að vinna þau verkefni sem þú tekur að þér eins vel og þú getur og gefur ávallt 110% af þér. Þetta verður til þess að þú kemst auðveldlega í stjórnunarstöðu, enda á það vel við þig að vera í forsvari fyrir menn og málefni. Þú ert hugrakkur einstaklingur og ert óhræddur við að taka á þig ábyrgð. Það og víðsýnið sem þú býrð yfir gerir það að verkum að þú ert ósjálfrátt leiðandi í umhverfi þínu, jafnt í atvinnulífinu sem og heima fyrir. Talan átta merkir árangur og líf þitt endurspeglar það.
Það er betra að gefa en þiggja. Það má segja að þetta sé mottó þitt í lífinu enda ertu góðmennskan uppmáluð. Þú mátt ekkert aumt sjá án þess að vilja leggja leggja þitt af mörkum til að gera heiminn að betri stað. Þú ert annálaður dýra- og mannvinur og því manna duglegastur við að gefa tíma þinn, peninga og orku í fjölmörg mannúðar- og góðgerðarmál. Þú býrð jafnframt yfir ákveðinni siðfágun og klassa sem brýst fram í tjáningu og skapandi verkefnum hvers konar. Talan níu er tala hugsjónafólksins en það er þér í blóð borið af gefa af þér svo að þú getir séð hugsjónir þínar rætast.
Skráðu netfangið þitt hér til að skrá þig í pottinn